Skip to main content
  • Haustfundur 2019

  • Við Húnaflóa

  • Inntaka nýrra systra

  • Inntaka nýrra systra

  • Siglufjörður mái 2019

  • 2019 Júnígangan

  • Haustfundur 2019

  • Title

  • Haustfundur 2019

  • Roðagyllum heiminn

    Jólafundur á Hótel Laugarbakka

    Vel heppnaður hátíðarfundur var haldinn 9. desember. Þar voru einnig teknar inn tvær nýjar systur. 

    Jólafundur 2021a

    Continue reading

    Aðalfundurinn haldinn á vefnum í október 2020

     

    121677766 10223576956720585 8112348736885001085 o  Tuttugu og tvær systur mættu á aðalfund Við Húnaflóa sem haldinn var á veraldarvefnum í umsjón Guðrúnar Láru Magnúsdóttur frú forseta. 

    Helga Hreiðars var fundarstjóri og Bryndís Valbjarnardóttir ritaði sína síðustu fundargerð í stjórn að þessu sinni. 

    Fram fór venjuleg aðalfundarstörf og þökkum við fyrri stjórn fyrir góð störf og bjóðum nýja stjórn velkomna til starfa. Sama gildir um önnur störf og nefndir, þökkum við þeim sem láta af störfum og bjóðum þeim sem taka við velkomna.

    Berglind flutti skýrslu formanns, Guðný gerði grein fyrir ársreikningi og Ragna flutti skýrslu verkefnastjóra.

    Ákveðið var að fresta verkefni okkar Stelpur geta allt um ár vegna ástandsins í þjóðfélaginu sem stafar af smitum covid-veirunnar sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu, en kennari á námskeiðinu Kristín Tómasdóttir býr þar og er því ekki æskilegt að hún fari út á land samkvæmt sóttvarnarlækni. Á áætlun er að bjóða tveimur árgöngum stúlkna að sitja námskeiðið að ári í stað þess sem fellur niður nú.

    Fundarformið gekk ótrúlega vel, ekki er vitað hvort veitingar hafa verið á boðstólum hjá hverri systur, en allar kveiktu á kertum, fóru með markmið og hvatningu eins og venja er.

     

    Forseti Soroptimistasambands Íslands og ritari eru okkar

    GL í stjórnSigga og Berglind á haustfundi 2020Til Hamingju Guðrún Lára

     

     

    Til hamingju Frú forseti Soroptimistasamband Íslands Guðrún Lára Magnúsdóttir og ritari Soroptimistasamband Íslands Sigríður Bjarney Aadnegard.

    Við eru stoltar systur Við Húnaflóa vegna þess að ein okkar systra er orðin forseti Landsambands Soroptimista og önnur ritari. Það eru þær Guðrún Lára Magnúsdóttir frú forseti og Sigríður Bjarney Aadnegard ritari. Við hlökkum svo sannarlega til starfsins næstu misseri og vonum að við megum fara að hittast sem fyrst.

    Myndin að ofan er tekin af því tilefni þegar við sendum Guðrúnu Láru og Sigríði kveðju og sendum inn á haustfund sem var haldinn gegnum netið vegna þessa sérstaka ástands á árinu 2020 af völdum Covid-19 veirunnar.

    Til sölu serviettur


    ServietturVið vekjum athygli á serviettum sem eru til sölu hjá okkur. Elín Aradóttir ein af okkur systrunum rekur fyrirtækið "Lagður" hannaði, tók myndir og valdi á servietturnar þar sem hún notaði holtasóleyjuna og hjartalaga lambagras sem eru táknmyndir fyrir starf soroptimista.

    Servietturnar kosta einungis 800 kr pakkinn og fer ágóðinn í að standa fyrir fræðandi fyrirlestra fyrir íbúa við Húnaflóa, sjálfstyrkingarnámskeið fyrir 12 ára stúlkur og fræðslurit sem allir foreldrar sem eru að eiga sitt fyrst barn fá að gjöf. Hægt er að panta serviettur og fá sendar heim í netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. og greiða inn á bankareikning klúbbsins.

    Reikningsupplýsingar: Soroptimistaklúbburinn Við Húnaflóa Bankanr. 0307-13-110110 kt. 670112-0200 kvittun: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.