Innskráning
Tvær leiðir til innskráningar:
- Innskráning á forsíðu - mest til að sjá falin gögn s.s. fundargerðir og slíkt. Ef notandi með skrifréttindi skráir sig inn getur hann leiðrétt texta og gert smávægilegar breytingar.
- Innskráning á kerfissíðu er á slóðinni www.systur.is/<þinn klúbbur>/administrator. Þar kemur upp stjórnborð og aðgangur að öllum helstu hlutum vefsins.
Nýr notandi
- Innskráning á kerfissíðu.
- Smellt á Users - Manage - Add new User.
- Nafn, notendanafn, lykilorð (tvisvar) og netfang skráð.
- Réttindi gefin: Assigned User Groups. Lesréttindi = haka við Registered en Super Users fyrir umsjónaraðila vefsíðu.
Ný grein
- Innskráning á kerfissíðu
- Smellt á New article
- Setjið titil greinar í Title
- Texti skrifaður/límdur í textahólf
- Til að samræmt snið verði á texta, er best að skrifa hann beint inn en nota annars strokleðrið hér fyrir ofan til að hreinsa forsnið af texta.
- Flokkur valinn (category, t.d. fréttir)
- Ef grein á að birtast á forsíðu - veljið Featured = Yes
- Save and close
Setja skjal á vefþjón
Einfaldast er að opna þann stað þar sem tengill á skjalið á að birtast, merkja innihaldið sem á að virkja sem tengil og smella á myndina af hlekknum fyrir ofan textareitinn. Efst í hægra horninu þar er mynd af skjali, smellið þar. Þá kemur upp File Browser sem sýnir ykkur möppur á vefþjóninum. Þar finnið þið Upload-hnapp, sem opnar leið inn á tölvuna ykkar, þið veljið skjalið ykkar og setjið inn á vefþjóninn.
Mynd með grein - innsetning
Myndir eru settar inn með því að smella á litlu myndina fyrir ofan textareitinn. Þá kemur upp "Image Manager".
Hér er slóð á ágætar leiðbeiningar um notkun á honum.
Mynd með grein - stærð
Þegar mynd er sett með grein, þarf að byrja á að skoða stærð hennar. Ef hún er stærri en 1 Mb borgar sig að minnka hana áður en hún er sett á vefinn. Myndvinnsluforrit af ýmsu tagi eru notuð til þess.
Hér er slóð á síðu sem sýnir nokkrar aðferðir.