Skip to main content
  • Menningarhúsið Kópavogi

  • Krakkapottur

  • Kópavogskirkja

  • Golf á Sigló

    Um klúbbinn

    Kópavogsklúbbur var stofnaður 4. júní 1975. Fyrsti formaður var Þorbjörg Kristinsdóttir.

    Heiðursfélagar eru 4, Þorbjörg Kristinsdóttir, Hildur Hálfdanardóttir, Sigurborg Einarsdóttir og Margrét Árnadóttir.

    Í dag eru í klúbbnum 55 konur og eru fundir haldnir annan mánudag í mánuði.

    Helstu verkefni klúbbsins í dag er að styrkja ungar konur í Kópavogi til mennta og sjálfshjálpar. Sömuleiðis sinnir klúbburinn útkeyrslu bóka fyrir Bókasafn Kópavogs.

    Klúbburinn stofnaði Sunnuhlíðarsamtökin á upphafsárum sínum, sem höfðu það að markmiði að reisa hjúkrunarheimili fyrir aldraða. Í gegnum tíðina hefur klúbburinn stutt vel við Sunnuhlíð.

    Einnig hefur klúbburinn lagt mörgum góðum verkefnum lið td. Krísuvíkursamtökunum, greitt laun hjúkrunarfræðings í forvarnarstarfi við MK, gefið gjafir til sambýla fatlaðra, stutt við efnalitlar fjölskyldur, stutt ungt fólk til náms og ýmislegt fleira.