Skip to main content

Um klúbbinn

 

mynd af systrum

 Soroptimistaklúbbur Bakka og Selja var stofnaður 18. október 1980. Fyrsti formaður klúbbsins var María Sigurðardóttir og eru 6 stofnfélagar enn starfandi í klúbbnum af 38 systrum. Mætingarstaður hefur um langt skeið verið í Kirkjumiðstöð Seljasóknar, en einnig er farið í heimsóknir á vinnustaði og söfn. Fundartími klúbbsins er oftar en ekki annar miðvikudagur í mánuð kl. 18:00.  

Klúbburinn hefur tekið þátt í margvíslegum verkefnum í gegnum tíðina. Stærsta verkefnið hefur verið stuðningur við fatlaða unga konu til þess m.a. að gera henni kleift að afla sér menntunar og ferðast. Þá hafa einstaklingar og fjölskyldur í nærumhverfi okkar verið styrkt á ýmsum sviðum. Barnageðdeild Landspítalans fékk styrk til námskeiðshalds fyrir nokkrum árum og stúlkur á Indlandi hafa verið styrktar til menntunar í gegnum félagið „Vinir Indlands“. Síðustu ár hefur ný bygging Kvennaathvarfsins verið styrkt rausnarlega svo dæmi séu tekin. Klúbburinn hefur séð um kaffiveitingar á uppstigningardag fyrir eldri borgara í Seljakirkju, nú í samstarfi við kvennfélagið.

Til að afla fjár hefur klúbburinn m.a. gefið út ljóðabókina „Vigdísarljóð“ en ljóðin eru eftir Vigdísi Einarsdóttur sem var stofnfélagi klúbbsins. Holtasóley, þjóðarblóm Íslendinga, hefur verið okkur hugleikið og hefur klúbburinn látið útbúa litlar nælur með Holtasóley og einnig töskur sem skreyttar eru með þjóðarblóminu.

Klúbburinn hefur um árabil haldið úti gönguhópi á mánudögum til heilsueflingar. Hægt er að skrá sig á útsendingarlista, en þátttaka stendur öllum systrum til boða.

ganga_1.jpg                          ganga_3.jpg     

Árin 2010- 2014 og aftur 2017-2023 sá klúbburinn um gróðurlund Soroptimistasambandsins í Heiðmörk. Þykir okkur afskaplega vænt um þennan litla gróðurlund og höfum farið margar ferðir bæði til þess að hreinsa og klippa. Við höfum einnig komið þar við á vorferðum okkar til þess að skoða og skála á fallegu svæði. Er sérstaklega ánægjulegt að fylgja eftir ilmreynitrjánum sem gróðursett voru í samvinnu við Litháen á 90 ára afmæli alþjóðarsambands Soroptimista 2011.

Vigdís Einarsdóttir, sem var ein af stofnsystrum í Bakka og Selja klúbbi og síðar heiðursfélagi klúbbsins, tók við verkefnastjórn umhverfismála árið eftir að Soroptimistasystur fengu útlhlutað lundinum í Hrossabrekku í Heiðmörk árið 1983. Hefur klúbburinn þannig tengst lundinum frá upphafi.

  

        lundurinn.jpg                  uppstigningarkaffi   

Vigdís Pálsdóttir klúbbsystir hefur tekið flestar myndirnar.