Skip to main content
  • Skagafjörður

  • Lýtingsstaðir

  • Sauðárkrókur

    Samfélagsverðlaun Skagafjarðar

    helga samfelagsverdlaun

    Samfélagsverðlaun Skagafjarðar hafa verið veitt í fimm ár, en þau eru árlega veitt þeim einstaklingi, fyrirtæki, stofnun eða félagasamtökum í Sveitarfélaginu Skagafirði sem þykir standa sig afburða vel í að efla skagfirst samfélag.

    Í ár hlaut soroptimista systir okkar, Helga Sigurbjörnsdóttir, verðlaunin og tók hún við þeim á heimili sínu á Sauðárkróki.

    Á heimasíðu sveitarfélagsins kemur fram að alls hafi borist rúmlega 20 tilnefningar sem atvinnu-, meningar- og kynningarnefnd vann úr og var það Helga sem hlaut þann heiður. Þar stendur jafnframt um útnefninguna:

    „Helga Sigurbjörnsdóttir hefur lagt drjúgan skerf til félags- og framfaramála á Sauðárkróki í marga áratugi. Starfaði hún hjá Sveitarfélaginu Skagafirði í rúmlega 40 ár, lengst af sem leikskólastjóri og lagði grunninn að því faglega og umhyggjusama starfi sem leikskólarnir sinna í Skagafirði.

    Auk langs og farsæls starfsferils í þágu barna á Sauðárkróki hefur Helga verið mikilsvirt og öflug kvenfélagskona og formaður Kvenfélags Sauðárkróks um árabil. Sem slík hefur hún verið í forystu margra brýnna og mikilvægra samfélagsmála, bæði vegna ýmissa félagslegra verkefna, eins og t.d. söfnun fjármuna til kaupa á lækningatækjum o.þ.h. en ekki síður verkefna sem snúa að velferð einstaklinga og fjölskyldna í gegnum sjúkrasjóð Kvenfélagsins. Þau verkefni fara ekki alltaf hátt.

    Þá hefur Helga verið ötul að kenna þjóðbúningasaum og verið óþreytandi við að hvetja konur til að bera búninginn við ýmis tækifæri. Helga er núverandi formaður Félags eldri borgara í Skagafirði. Þar eins og annars staðar er hún óþreytandi í störfum í þágu eldri borgara. Margt fleira mætti segja um forystu- og framfaraverkefni Helgu“ .

    Systur klúbbsins eru virkilega stoltar af Helgu, sem á verðlaunin sannarlega skilið eftir ötult starf í þágu íbúa Skagafjarðar.